
Brasilískt jiu-jitsu
Brasilískt jiu-jitsu, eða BJJ, er sjálfsvarnar - og keppnislist sem leggur áherslu á gólfglímu (e. grappling), bardaga í gólfinu (e. ground fighting) og tök/lása (e. submission holds). Markmiðið er að ná mótherjanum í gólfið og berjast þar uns yfirburðarstöðu er náð í gegnum ólíka tækni, til dæmis liðamótalása (e. joint locks), hengingar (e. chokeholds) eða með því að notfæra sér þrýstipunkta (e. compression locks).
Í brasilísku jiu-jitsu er vogarafli og tækni á borð við lásatök og hengingar notað til þess að verjast stærri einstaklingi í gólfinu.
Liðamótalásum er gjarnan beitt á ákveðinn útlim, sem teygður er út fyrir sitt eðlilega hreyfisvið og þrýstingur aukinn á liðamótinn eftir ákveðnum aðferðum þar til andstæðingur getur ekki sloppið og gefst upp. Henging er kyrkingatak sem truflar blóðflæði til heilans og getur leitt til meðvitundalauss andstæðings gefist hann ekki nógu fljótt upp.

Þjálfari (í bláum galla fyrir aftan): James, svartbeltingur í brasilísku jiu-jitsu
Hugmyndin með gólfglímu er ekki að yfirbuga með styrk, heldur hugviti og kænsku. Markmiðið er að koma andstæðingi í stöðu sem stefnir í uppgjöf, og á æfingum er mikilvægt að gefa viðkomandi tækifæri á að finna leið út úr slíkri stöðu. Það gerir engum greiða að gera einstaklingi of auðvelt fyrir að sleppa, né er lítið gagn í að yfirbuga strax. Þá eru samskipti gríðarlega mikilvæg til þess að forðast meiðsli.

James að þjálfa brasilískt jiu-jitsu hjá Impact
Glíma í brasilísku jiu-jitsu getur verið Gi og Nogi.
Í Gi glímu er áhersla lögð á grip í þykkan æfingagalla og andstæðingnum stýrt í gegnum þau. Það er þá í hlut þess sem gripið er í að koma í veg fyrir slík grip og beita aðferðum til að rjúfa þau sem komast í gegn.
Nogi glíma er ekki síður mikilvæg þó hún geti reynst tæknilega erfiðari, en þá er glímt í hefðbundnum æfingafötum sem mun erfiðara er að ná gripi á.


