top of page
Hanging Boxing Gloves_edited.png

NEYÐARVÖRN

Black Textured Background

Tímalína árásar

Hefurðu einhvern tíman hugleitt hvernig ógn eða hætta þróast yfir tíma? Það fyrsta sem margir tengja strax við árás eru líkamleg átök, en í raun byrjar atburðarrásin löngu fyrir það. Hún hefst um leið og einhver vísbending um ógn eða hættu nær athygli okkar. Þá byrjar klukkan að tifa og við stöndum frammi fyrir flókinni ákvarðanatöku. Hvað hjálpar okkur að bregðast við af skynsemi? Stutta svarið er: aðstæðuvitund, spennulækkandi samskiptatækni og varnartækni (ef allt fer á versta veg).​​

Hér á myndinni hefur Tony Blauer, hönnuður sjálfsvarnarkerfisins SPEAR í Bandaríkjunum, kortlagt tímalínu árásar: frá því að einstaklingur kemur auga á ógnina og þar til átökum líkur. Hugmyndafræði Blauer hefur veitt okkur hjá Impact mikinn innblástur enda sjálfsvarnarkerfi í eins fræðilegum búningi og SPEAR sjaldséð.

Aðstæðuvitund

Við höfum oft enga stjórn á því sem gerist í kringum okkur. Hraðinn í samfélaginu er gríðarlegur og margt keppist um athygli okkar. Á sekúndubroti getum við orðið miðpunktur í hættulegri atburðarrás sem enginn sá fyrir. Eða hvað?

Maðurinn er ein stór upplýsingavél. Við erum forrituð til að taka eftir ótrúlegustu hlutum kringum okkur og meðhöndla sem vísbendingar um hvað gerist næst. Vandamálið er ekki upplýsingaskortur heldur alltof mikið upplýsingamagn. Eðlilega verður heilinn þreyttur og forgangsraðar upp á nýtt. Við sökkvum okkur ofan í eitthvað fyndið í símanum eða setjum upp heyrnatól og einhverja notalega sögu í gang.

Nema hvað að nú tökum við ekki eftir félaga okkar sem stendur hinumegin götunnar og veifar. Eða hjólinu sem hamast á bjöllunni fyrir aftan okkur og þarf að komast frammúr. Ekki heldur reiða kúnnanum sem æðir upp að afgreiðsluborðinu okkar tilbúinn að hella sér yfir okkur. Og nei, við höfum enga hugmynd um einstaklinginn sem fylgist grannt með okkur í strætó og fer út á sama stoppi og við.

Samskiptatækni

Ef við erum vökul fyrir því sem er að gerast í kring fáum við aukið tækifæri til að annaðhvort yfirgefa hættuna eða búa okkur undir hana. Við stjórnum nefnilega alltaf hvernig við bregðumst við sama hve óviðráðanlegar aðstæður eru. Því meiri yfirsýn sem við höfum, því líklegra er að við veljum skynsamari kostinn í stöðunni.

Þegar við fáum tækifæri til að róa aðstæður er okkar hættulegasta vopn góð samskipti. Þar virkar spennulækkandi líkamstjáning ekki síður en sú munnlega. Maðurinn er félagsvera og býr yfir ótrúlegri getu til að lesa í líkamsburð, svipbrigði og hreyfingar annarra. Oft fáum við eitthvað slæmt á tilfinninguna löngu áður en nokkur segir eitthvað.

Þegar spennan er há skiptir tvennt höfuðmáli: hafa góða stjórn á eigin tilfinningum og smita rétt útfrá sér. Sá sem æsir sig á móti er líklegri til að espa upp aðstæður. Og sá sem tæklar hlutina af ró og yfirvegun nær æstum einstaklingi frekar niður á jörðina.

Varnartækni

Hér erum við komin í allra síðasta úrræðið. Ef hvorki er hægt að flýja ógnina né stilla til friðar þurfum við að setja okkar eigið öryggi í algjöran forgang. Við þurfum að verja okkur. Og þar flækjast málin svolítið því öll höfum við ólíkan bakgrunn (það sem virkar fyrir einn, virkar ekki endilega fyrir annan).

Ákveðin varnartækni getur virkað vel í fyrirfram ákveðnum bardaga sem er framkvæmdur eftir ákveðnum reglum. Framfylgi aðilar ekki tilsettum reglum stígur dómari inn og refsingar eru gefnar út. Þessi sama tækni virkar ekki í miðri árás úti á götu, enda engar reglur þar: ekkert við árás er sanngjarnt eða réttlætanlegt á nokkurn hátt.

Þar af leiðandi reynir Impact að taka fyrir fjölbreyttar aðstæður, fara yfir helstu hættur þeirra og hvernig bregðast má við (hvaða tækni er líkleg eða ólíkleg til árangurs). Mikilvægt er að fá tækifæri til þess að prófa varnartækni á móti ólíkum mótherjum til þess að átta sig á styrkleikum hennar og takmörkunum. Nálgun Impact á neyðarvörn er því fyrst og fremst gagnrýnin, sem er ástæða þess að þjálfarar okkar leita í og kynna sér mörg bardagakerfi.

Ofan á það leitum við í endurgjöf bæði þjálfara og iðkenda Impact sem sinna öryggisgæslu og hafa því miður þurft að grípa til neyðarvarna í sínum störfum.

​

Þrátt fyrir að miðla neyðarvörn og öryggistækni af miklum eldmóð, vonum við að enginn þurfi nokkurn tímann að nota það sem við kennum.

IMPACT

Combat-sports Academy

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page