top of page
Hanging Boxing Gloves

REGLUR OG SKILMÁLAR 

IMPACT

COMBAT SPORTS ACADEMY

Impact ætlast til þess að allir sem æfa hjá félaginu séu góðir borgarar sem meta og virða gildi um heiðarleika, almennt velsæmi og ábyrga almenna framkomu.


Hegðun sem er ekki í samræmi við stefnu og gildi ICA og hefur neikvæð áhrif á starfsemi félagsins, eða einstaka æfingafélaga, getur orðið til þess að viðkomandi verði vísað frá æfingum félagsins fyrirvaralaust án endurgjalds og jafnvel neitað um endurkomu á æfingar eða aðra viðburði innan félagsins.


Hér undir "Brot á siðarreglum" er listi yfir hegðun sem telst óviðeigandi. Listinn er á engan hátt tæmandi fyrir allar aðstæður sem upp kunna að koma. Einhverskonar agabrot er alltaf ástæða fyrir því að agaviðurlögum sé beitt, allt frá áminningu til brottvikningar af æfingum.

Signing A Document_edited.jpg

Brot á siðarreglum

1. Stofna til slagsmála, hvort sem er á æfingum eða utan þeirra.
2. Mismuna með orðum eða gjörðum hópum eða einstaklingum vegna kynþáttar, hörundslitar, kynferðis, aldurs, trúar, fötlunar, þungunar eða þjóðernis.
3. Ósiðleg hegðun eða ósæmileg, kynferðislegt áreitni eða særandi munnlega, sjónræna (þ.e. klám) eða efnislega hluti.
4. Sýna af sér hegðun eða taka þátt í aðstæðum sem leiða til óöryggis/óöruggs ástands.
5. Ógna, hræða, áreita, þvinga eða trufla æfingarfélaga á æfingum.
6. Ósæmileg hegðun og óvirðing í garð þjálfara á æfingum.
7. Sýna æfingafatnaði ekki tilskylda virðingu.
8. Nota svívirðingar.
9. Vera undir áhrifum áfengra drykkja eða ólöglegra efna á æfingum.
10. Þjófnaður, misnotkun eða vísvitandi skemmdir á eignum ICA.
11. Mæta á æfingar í ófæru ástandi, þar með talið að vera undir áhrifum vímuefna eða misnotkun einhverra lyfseðilsskyldra lyfja. ATH: Sé viðkomandi á lyfjum samkvæmt læknisráði þá mælum við ekki með að viðkomandi hætti á þeim/breyti inntökutímum nema í samráði við sinn lækni.
12. Neita að undirgangast lyfja og/eða áfengispróf þegar þjálfari biður um það með réttmætum hætti.
13. Halda fram röngum eða meinfýsnum staðhæfingum um félagið, þjálfara eða æfingafélaga.
14. Leita eftir, safna framlögum eða dreifa skrifuðu eða prentuðu efni án leyfis stjórnenda
15. Hlýða ekki þjálfara á æfingum eða annarskonar óhlýðni.
16. Sérhver gjörð eða hegðun sem brýtur gegn landslögum og reglugerðum og er þar af leiðandi ólögleg.

Æfingaskilmálar

Þeir sem æfa hjá Impact gera slíkt á eigin ábyrgð. Í því felst að einstaklingur sem sækir æfingar og viðburði hjá Impact ber sjálfur fulla ábyrgð á að hafa viðeigandi slysatryggingu. Impact og aðrir umsjónaraðilar æfingahúsnæðis bera ekki ábyrgð á slysum eða meiðslum iðkenda. Þetta á við um allar tegundir æfinga og viðburða sem fara fram í æfingahúsnæðinu.

​

Sá iðkandi Impact sem tekur þátt í einhvers konar öryggisverkefni hjá ICA Guardians ehf. utan æfingahúsnæðis gerir svo á eigin áhættu og ber fulla ábyrgð á að hafa viðeigandi slysatryggingu sjálfur. Hvorki félagið Impact né eigendur þess, ICA Guardians ehf. bera ábyrgð á slysum eða meiðslum sem kunna að gerast í öryggisverkefnum utan æfingatíma.

 

Iðkendur og gestir bera fulla ábyrgð á munum sem skildir eru eftir í æfingarhúsnæði. 

​

Gerð er krafa um að allir þeir sem sækja um að fá að æfa hjá Impact þurfa að hafa náð 18 ára aldri, nema um barnanámskeið sé að ræða. Hægt er að veita undantekningu ef foreldri / forráðarmaður veitir skriflegt samþykki fyrir hönd hins ólögráða. Athugið þó að hvert tilfelli er metið fyrir sig. Ólögráða iðkendur fá ekki að taka þátt í öryggisverkefnum ICA Guardians ehf.

​

Impact fer fram á að allir sem sækja eina æfingu eða fleiri hafi hreina sakarskrá. Mæti umsækjandi ekki slíkri kröfu er hægt að óska eftir samtali við yfirþjálfara Impact í Reykjavík undir fullum trúnaði. Sá iðkandi Impact sem ekki getur framvísað hreinu sakarvottorði til ICA Guardians ehf. fær ekki að taka þátt í öryggisverkefnum utan æfinga. 

Greiðsluskilmálar

Gjöld sem greidd eru fyrir æfingar, stök námskeið og viðburði hjá Impact fást ekki endurgreidd þurfi umsækjandi sjálfur að hætta við og/eða getur ekki haldið mætingu áfram.

​

Gjöld fyrir stakar æfingar innan hvers námskeiðs sem falla óvænt niður sökum veikinda þjálfara, lélegrar mætingu, annarra viðburða í húsinu á sama tíma eða lokunar hússins, fást ekki endurgreidd.

 

Greiðslukvittanir berast iðkendum ekki sjálfkrafa, óska þarf sérstaklega eftir slíku í tölvupósti stílaðan á ICA@ICAguardians.com

IMPACT

Combat-sports Academy

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page