
PERSÓNULEG NEYÐARVÖRN
Byrjendanámskeið í sjálfsvörn 18+
Um námskeiðið
Mánudaginn 5. október 2026 hefst grunnnámskeið í persónulegri neyðarvörn.
Kennt verður alla mánudaga og miðvikudaga í október frá kl. 20 - 21 í glæsilegum sal Ju Jitsufélags Reykjavíkur.
Hver æfing skiptist í létta upphitun, kennslu í aðstæðuvitund (e. situational awareness), neyðarvarnartækni, teygjur og umræður. Við mælum því með léttum, teygjanlegum æfingafatnaði.
Hentar þeim sem hafa aldrei æft bardagalistir en líka þeim sem sinna öryggisgæslu og vilja vera skarpari í hugsun og sjálfsöruggari í líkamsbeitingu.
Engin krafa er gerð um afburðagott líkamlegt form, upplýsa þarf þjálfara þó um meiðsl og aðra sjúkrasögu sem kann að skipta máli.
Verð á mann er 12.990 kr
Ef tveir skrá sig saman er verð 9.990 kr á mann
Námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd






_edited.jpg)
_edited.jpg)
