top of page
Hanging Boxing Gloves

LETHWEI

SEMINAR
2026

Dave Leduc

Sexfaldur heimsmeistari í opnum þyngdarflokki í Lethwei

Laugardaginn 7. nóvember 2026 fáum við merkilega heimsókn hingað til okkar á klakann. Íslandsvinurinn og yfirstjórnandi Leduc Lethwei á Íslandi kemur og heldur námskeið í bardagalistinni frá kl. 13 - 16.

​

Dave Leduc, fæddur árið 1991 í Kanada, hóf sinn bardagaferil 17 ára gamall og keppti fyrst á heimsmeistaramóti í Lethwei í Myanmar árið 2016. Þremur árum síðar fór Impact: Combat-Sports Academy í samstarf við Dave Leduc og varð fyrsti samþykkti bardagaskóli í Evrópu af Leduclethwei Academy.  

  • Facebook
  • Instagram
  • Youtube
50938172_1928426110559739_7834844431869018112_n.jpg

Hvað er kennt?

Þjálfarar Impact sáu fljótt hagnýtingargildi þess að innleiða Lethwei í bardagaumhverfi sitt sem byggir mest á neyðarvörn og öryggistækni. Ásamt því að vera fyrsta keppnislistin sem félagið tekur upp er hún kennd sem sjálfsvarnarlist sökum áherslu hennar á "níu útlimi" þ.e. hendur, fætur, olnboga, hné og höfuð. Þessi fjölbreytni í líkamsbeitingu ásamt því að berjast berhent og geta skallað andstæðinginn undirbýr vel þann einstakling sem neyðist til að verja sig í átökum / árás úti á götu þar sem reglurnar eru engar. 

Fyrir hverja?

Alla sem hafa áhuga, ekki flóknara en það. Þetta er þriðja heimsókn Dave Leduc til Íslands og á síðustu námskeiðum hefur hann blandað saman tækni fyrir byrjendur og lengra komna. Það þarf því engan sérstakan bakgrunn í bardagalistum til þess að mæta og kynnast Lethwei. Gera má þó ráð fyrir miðlungs áreynslu.

​

Lethwei er samsuða bardagatækni sem á skyldmenni í mörgum öðrum bardagalistum, þetta er því dúndur kynning fyrir þá sem eru að finna sig í bardagaheiminum. Við mælum sérstaklega með þessu fyrir þá sem hallast að Muay Thai.

​

Lethwei gagnast líka þeim sem sinna öryggisgæslu vegna þess að mikið er unnið með að lesa í líkamstjáningu og nota slíkt til að bæði verja persónulegt rými (e. personal space) og takmarka árásargetu andstæðings sem sleppur inn fyrir varnirnar með því að grípa og læsa viðkomandi upp við sig (e. clinch).​​

ju-jitsu_salur_1.png

Hvar verður námskeiðið haldið?

Í sal Ju Jitsufélags Reykjavíkur í Ármúla 19, 108 Reykjavík. 

Myndir fengnar af heimasíðu Ju Jitsufélags Reykjavíkur

Skráning

Almennt verð:  11.990 kr / mann

Iðkendur ICA: 7.990 kr / mann

​

Umsækjendur þurfa að hafa hreina sakarskrá og að hafa náð lögaldri. Ólögráða einstaklingar geta þó samið við þjálfara um að sækja námskeiðið gegn skriflegu samþykki foreldris / forráðamanns.

 

Við hvetjum alla sem vilja skrá sig á námskeiðið að kynna sér vel reglur og skilmála ICA

Frekari upplýsingar um námskeiðið veita þjálfarar í tölvupósti á ICA@ICAguardians.com

​

Fyrir þá sem hafa áhuga en geta ekki skráð sig akkúrat núna geta óskað eftir áminningu um námskeiðið þegar nær dregur með því að skrá tölvupóstfangið sitt neðst á þessari síðu. 

Skráningarform

Hefur þú hreina sakarskrá? / Do you have a clean criminal record?
Já / Yes
Nei / No
Kickboxing Training Session

Ég hef áhuga en get ekki skráð mig akkúrat núna, má ég fá áminningu í tölvupósti þegar nær dregur?

IMPACT

Combat-sports Academy

  • Instagram
  • Facebook
bottom of page